Golfklúbbur Hornafjarðar
Við minnum gesti og félagsmenn á að skrá sig á rástíma
Nú stendur fyrir dyrum að koma fyrir dreni á 1. braut . Við höfum verið í samningaviðræðum við sveitarfélagið um að styrkja þessa framkvæmd og það hefur nú verið samþykkt sem afar ánægjulegt.
Golfæfingar barna eru á þriðjudögum og fimmtudögum. yngri hópur kl 10:00 og eldri kl 11:00. Jón Guðni Sigurðsson sér um æfingarnar ásamt Kristni Justiniano. Á mánudagskvöldum kl 20:00 er skipulagt golf með unglingunum einnig í umsjá Jóns Guðna.
Á myndinn eru eldri krakkarnir.
Í ár voru tveir keppendur í unglingaflokki í meistaramótinu en það voru þeir Kristján Reynir Ívarsson sem vann höggleikinn og Ágúst Hilmar Halldórsson sem vann punktakeppnina.