Staðareglur
1. Vallarmörk
Vallarmörk eru hvítar stikur. Bílastæði og malarsvæði umhverfis golfskála eru út af. (Regla 2.1)
2. Vítasvæði
Þar sem vítasvæði er einungis merkt á annarri hlið framlengist vítasvæðið óendanlega (t.d. við sjó).
3. Óhreyfanlegar hindranir
Allar stikur sem lýsa fjarlægð frá holu (fjarlægðarstikur) á vellinum eru óhreyfanlegar hindranir sem lausn er veitt frá samkvæmt reglu 16.1 (Óeðlilegar vallaraðstæður – þar á meðal óhreyfanlegar hindranir). Engin lausn fæst samkvæmt reglu 15.2 (Hreyfanlegar hindranir).
Víti fyrir að leika bolta af röngum stað í bága við staðarregluna: Almenn víti samkvæmt reglu 14.7a.
4. Varabolti á 3. Braut
Ef leikmaður veit ekki hvort bolti hans er innan vítasvæðis á 3. braut má leikmaðurinn leika varabolta samkvæmt reglu 18.3 sem er breytt þannig:
a. Þegar upphaflegi boltinn finnst innan vítasvæðis á 3. braut og innan þriggja mínútna leitartímans. Leikmaðurinn getur valið að:
i. Halda leik áfram með upphaflega boltanum þar sem hann liggur innan vítasvæðisins og þá má ekki leika varaboltanum. Enga lausn má taka gagnvart upphaflega boltanum aðra en að leika varaboltanum. Öll högg leikinn með varaboltanum áður en leik með honum var hætt (þar með talin högg og vítahögg sem hlutust af leik með honum) telja ekki, eða
ii. halda áfram leik með varaboltanum en þá má ekki leika upphaflega boltanum.
b. Þegar upphaflegi boltinn finnst ekki innan þriggja mínútna leitartímas eða er vitað eða nánast öruggt að hann er innan vitasvæðis. Varaboltinn verður bolti leikmannsins , í leik.
Víti fyrir að leika bolta af röngum stað í bága við staðarregluna: Almennt víti samkvæmt reglu 14.7a.
5. Fallreitir
Ef bolti er innan vítasvæðis við leik á 2., 4., 8. og 9. holu, þar á meðal þegar það er vitað eða nánast öruggt að bolti sem ekki hefur fundist stöðvaðist innan vítasvæðisins, má leikmaðurinn taka lausn samkvæmt reglu 17.1 eða sem viðbótarlausnarmöguleika:
Leikmaður má láta bolta falla innan fallreitsins sem er afmarkaður með málningu og merktur „FR“. Fallreiturinn er lausnarsvæði samkvæmt reglu 14.3 (a. Að láta falla innan viðbótarlausnarsvæðis).
Víti fyrir að leika bolta af röngum stað í bága við staðarregluna: Almennt víti samkvæmt reglu 14.7a.
6. Óeðlilegar vallaraðstæður
a. Svæði merkt með bláum hælum og/eða bláum línum er grund í aðgerð.
i. Leikmaður hefur um tvo valkosti að velja:
1. Leika boltanum innan svæðisins
2. Taka vítalausa lausn skv. 16.1.
b. Svæði merkt með bláum hælum og hvítum toppi er bannreitur.
i. Leikmaður verður að taka lausn þegar:
1. Bolti hans liggur innan bannreits, eða bannreitur truflar svæði fyrirhugaðrar stöðu eða sveiflusviðs við leik bolta sem liggur utan bannreitsins (sjá reglur 16.1f og 17.1.e)
Víti fyrir að leika bolta af röngum stað í bága við staðarregluna: Almenn víti samkvæmt reglu 14.7a.
7. Bolti á hreyfingu hittir hlut (slátturóbóta) af slysni
Bolti á hreyfingu hittir hlut (slátturóbóta) af slysni.
a. Leika þarf boltanum þar sem hann liggur, nema ef boltinn stöðvast á róbotanum, sbr. Undantekningu 1 við reglu 11.1b. Bolti stöðvast á hlut á hreyfingu.
b. Ef róbóti skemmir kyrrstæðan bolta í leik gildir regla 4.2c. Leikmaðurinn má þá skipta um bolta ef boltinn er skorinn eða sprunginn.
c. Hafi boltinn færst úr stað gildir regla 9.6 og leggja þarf boltann á upphaflegan stað.
d. Ef boltinn brotnar við að lenda í róbóta eftir högg gildir regla 4.2b. Höggið gildir ekki og leika verður öðrum bolta þaðan sem fyrra högg var slegið.
Víti fyrir að leika bolta af röngum stað í bága við staðarregluna: Almenn víti samkvæmt reglu 14.7a.
8. Skemmdir á flötum
a. Ef skemmd er á flötum af völdum fugla eða annarra dýra má taka lausn skv. reglu 16.1d.
Víti fyrir að leika bolta af röngum stað í bága við staðarregluna: Almennt víti samkvæmt reglu 14.7a.
9. Golfleikurinn
a. Leiktu völlinn eins og þú kemur að honum og boltanum eins og hann liggur skv. Reglu 1.1.
b. Leiktu samkvæmt reglunum og í anda leiksins.
c.Þú ert ábyrgur fyrir að beita sjálfan þig vítum ef þú brýtur reglu, þannig að þú getir ekki hagnast gagnvart mótherja þínum í holukeppni eða gagnvart öðrum leikmönnum í höggleik.
Víti fyrir að leika bolta af röngum stað í bága við staðarregluna: Almenn víti samkvæmt reglu 14.7a.
Að öllu öðru leyti skal leika samkvæmt golfreglum The Royal and Ancient of St. Andrews.
Almennt víti fyrir brot á staðarreglu í höggleik/punktakeppni tvö högg.
Almennt víti fyrir brot á staðarreglu í holukeppni holutap.