Framkvæmdir við 1. braut

Nú stendur fyrir dyrum að koma fyrir dreni á 1. braut . Við höfum verið í samningaviðræðum við sveitarfélagið um að styrkja þessa framkvæmd og það hefur nú verið samþykkt sem afar ánægjulegt. Nú er staðan sú að verktakarnir bíða eftir að það frjósi nógu mikið til að hægt sé að hefja framkvæmdir. Grafin verður skurður niður með brautinni, skipt um jarðefni í honum og sett í hann 30 cm breytt drenrör. Út frá þessu röri koma svo tvö þverrör, auk þess verða settir tveir brunnar.

Okkur til liðsinnis og ráðgjafar er Bragi Karlsson og svo munu Hjarðarnesbræður sjá um verkið. Þetta er löngu tímabær aðgerð og fögnum við því að þetta sé komið af stað.

Next
Next

Golfæfingar barna og unglinga