Minningarmót Gunnars Hersis
Minningarmót Gunnars Hersis var haldið 30. maí sem er föstudagur fyrir sjómannadag. Mótið var afar vel sótt en 62 golfarar tóku þátt í þetta sinn. Sigurvegari mótsins var Hreiðar Bragi, í öðru sæti var Linda Hermanns og í þriðja var Óli Kristján. Einnig voru veitt verðlaun fyrir 8., 15., 25., 29., 35., 46., 55., og 62. sætið sem og nokkrir skorkorta vinningar voru í boði. Eins og áður þá styrkir þetta mót barna og unglingastarf í klúbbnum og bakhjarlar mótsins hafa verið þeir sömu frá upphafi en það eru Pakkhúsið, Hlaðbær Colas, Bakkabúð, Bakatil ehf sem rekur m.a. Dönsku krána, EA games og nú höfum við fengið góðan liðsauka því Íshúsið hefur bæst í þennan góða hóp auk þess sem VÍS og Hótel Höfn taka þátt í þessu með okkur.
Boðið var upp á súpu að leik loknum. Veðrið var einstaklega gott sem án efa hefur haft áhrif á góða þátttöku.
Styrkurinn í ár er krónur 346.000