Meistaramót GHH, unglingaflokkur
Í ár voru tveir keppendur í unglingaflokki í meistaramótinu en það voru þeir Kristján Reynir Ívarsson sem vann höggleikinn og Ágúst Hilmar Halldórsson sem vann punktakeppnina.
Það er von okkar hjá GHH að það fjölgi í unglingaflokki á komandi árum þar sem æ fleiri börn mæta á æfingar sem haldnar eru tvisvar í viku hjá klúbbnum.